{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
phnom-penh-cambodia-royal-palace-buddha-flower-closeup-cover
phnom-penh-cambodia-royal-palace-pavilion-square-sidebar

Phnom Penh

Í hinni líflegu Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu, finnur þú áhugaverða blöndu af fornri sögu og nýrri þróun. Borgin er hún mikilvægasta fjármála-, sögu- og menningarmiðstöð landsins. Árið 1920 var hún kölluð Perla Asíu en það var fyrir hið ofbeldisfulla nýlendutímabil og tímabil rauðu kmeranna.

Fá fría ráðgjöf

Friðsæl hof og fornir helgimunir

Þú átt eftir að finna fjölmörg reykelsisfyllt hof (wat) í Phnom Penh en á meðal þeirra er Wat Moha Ounalom og Wat Phnom. Wat Ounalom var byggt árið 1443 og er svokallað föðurland búddista. Ef þú ert fyrir forna helgimuni, farðu þá að bænahúsinu sem er á bakvið aðalbygginguna en þar finnur þú brot af augabrún Búdda. Wat Phnom er friðsælt hof og fallegur staður til þess að skoða.

Þjóðminjasafn Kambódíu er staðsett í PH 13 Central Phnom Penh. Byggingin sjálf er gerð með hefðbundnu móti og við hana finnur þú einnig fallegan garð. Safnið geymir nokkra af bestu kmerastyttum í landinu. Þú getur einnig séð varðveitta menningu kmeranna í Silver Pagoda sem er staðsett á Samdech Sothearos Blvd. Búddastytturnar þar eru ótrúlegar en þær eru gerðar úr skíragulli og þaktar þúsundum ekta demanta.

Fá meiri upplýsingar

Killing Fields

Hið fræga hvíta bænahús, stupa, er mikilvægur minnisvarði fyrir hið dimma tímabil rauðu kmeranna; Killing Fields. Húsið stendur á fjöldagröf þeirra, þúsundi manna, sem týndu lífi sínu á þessu tímabili. Athugaðu að Killing Fields er ekki fyrir viðkvæma. 

Hvernig er best að komast á milli staða í Phnom Penh?

Það er almennt ekki erfitt að rata í Phnom Penh og frekar auðvelt að komast á milli staða með því að leigja hjól eða mótorhjól (cyclos). Þú getur tekið tuk-tuk sem þú finnur alls staðar í borginni.

Auðvelt er að ferðast til annarra áfangastaða í Kambódíu með rútum eða lestum. Athugaðu að lestarnar fara mun hægar yfir en rúturnar.

Fá meiri upplýsingar um Phnom Penh

Hvenær er best að ferðast til Phnom Penh?

  • Þú getur búist við hitabeltisregntímabili frá maí/júní til október
  • Frá febrúar til maí er mjög heitt.
  • Frá nóvember til janúar er yfirleitt aðeins minni raki og hiti, miða við aðra mánuði ársins.

Okkar ráð!

Phnom Penh er frábær staður til þess að fagna kínverska nýárinu sem er haldið hátíðlegt í lok janúar eða byrjun febrúar. Á þessum tíma eru mikil hátíðarhöld um allt og fylla drekadansarar göturnar.

Fá meiri upplýsingar um Phnom Penh

Staðir til að sjá í Phnom Penh - perlu Asíu

Þessi sögulega borg, Phnom Penh, gekk í gegnum hræðilega atburði með rauðu kmeranna og það má finna minnisvarði um afleiðingar þess sem vert er að skoða eins og til dæmis Killing Fields.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Phnom Penh

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.