Karíbahafið

  • Listmálari á ströndinni í Karabíska hafinu
  • Hvert sem þú lítur eru pálmatré og hvítar strendur. Það er draumurinn.
  • Njóttu lífsins í Karabíska hafinu á skútu.
  • Það eru skemmtilegir litirnir á húsunum í Trinidad á Kúbu.
Listmálari á ströndinni í Karabíska hafinu
 

Ferðir til Karabíska hafsins - velkomin(n) í paradís

Karabíska hafið er rétti staðurinn ef þú vilt liggja allan daginn í hengirúmi með kókosdrykk í annarri og myndavélina í hinni. Fullkominn staður til að hlaða batteríin. Fyrir ævintýragjarna er hér að finna ógrynni af margvíslegu vatnasporti og hér er einnig alveg stórbrotin náttúra. Kauptu ferðina til Karabíska hjá KILROY travels!

Í Karabíska hafinu eru meir en 7000 eyjar og hafið nær frá Flórída til Venesúela. Þótt þetta sé lítið landsvæði eru eyjarnar ansi menningarlega frábrugðnar.  

Hinar fjölmörgu Karabísku eyjar

Kúba - uppáhald margra ungra ferðamanna því landið býr yfir áhugaverðri sögu og frábærri tónlistar og dansmenningu. Hér geturðu fræðst um Kúbu og um leið aukið færni þína í romm drykkju og vindla reykingum. Farðu á spænsku námskeið, njóttu þess að slaka á ströndinni eða við sundlaugarbakkann eða skelltu þér í ævintýraferð til að virkilega upplifa eyjuna. 

Jamaíka 

Annar athyglisverður staður sem býr yfir mikilli menningararfleifð. Ef reggie tónlistin heillar er Jamíka algjörlega málið. Því það er hvort um sig fæðingarstaður og höfuðborg tónlistarinnar. Djamm, bjartir litir, brosandi fólk og einstakar strendur eru einkenni þessara fallegu eyju. 

Dómíníska Lýðveldið

Dómíníska Lýðveldið er einnig vinsæll áfangastaður meðal unga fólksins. Hér eru verð lág, strendurnar klikkaðar og vindurinn fullkominn fyrir vatnasport svo sem brimbretti eða kitesurfing.

Trinidad og Tobago 

Er málið ef þú vilt sjá fræga karnivalið þeirra og einnig ef þú ert mikið fyrir að blanda saman strandarfílingi með músík og dans.

Fáðu hjálp við val á bestu eyjunni fyrir þig

Þetta er aðeins lítill hluti af því sem Karabíska hafið hefur upp á að bjóða. Það úir og grúir af eyjum því gæti verið sniðugt að hafa samband við ferðasérfræðinga okkar hjá KILROY. Þeir geta hjálpað þér í að velja bestu eyjuna fyrir þig eða sérhanna ferð sem gefur þér möguleikann á að "hoppa" á milli eyja en þannig ættir þú að fá innsýn inní mismunandi eyjamenningu.

Að komast til Karabíska hafsins

Þú getur komist til Karabíska hafsins á mismunandi vegu. Aðeins fáar eyjanna bjóða uppá beint flug frá Evrópu svo það er líklega að þú þurfir að millilenda á leið þinni. Það getur einnig verið þrautinni þyngra að finna réttu leiðina, svo kynntu þér málið hjá sérfræðingum okkar hjá KILROY. Karabísku eyjarnar eru einnig vinsæll viðkomustaður þegar ferðast er til Norður-, Mið- eða Suður-Ameríku.

Gisting á Karabíska hafinu

Ef þú vilt fá mest fyrir peninginn skaltu gista á "all-inclusive" hóteli. Þar færð þú allar máltíðir og drykki innifalda í verðinu og á svipuðu verði og venjulegu hóteli. Annar möguleiki er að gista á minni hótelum, svokölluðum budget hótelum. Vertu alltaf viss um að hótelið sé vel staðsett því ódýrari hótelin geta verið langt frá fjörugustu stöðunum.

Verðflokkar á Karabíska hafinu

Karabíska hafið er almennt talið dýr áfangastaður. Verðin eru samt misjöfn á milli eyja. Ef þú hefur valið að gista á "all-inclusive" hóteli þá geturðu nánast lifað á loftinu þegar þú ert kominn á staðinn. Auðvitað ferð það svo eftir þér hvernig þú vilt borða og lifa - klúbbum með ríka og fræga fólkinu eða götueldhúsum með innfæddum. 

Hvenær er besti ferðatíminn

Fellibylatímabilið er frá maí til október (getur þó breyst milli ára). Á þessu tímabili þá getur veðrið verið mjög óstöðugt. Á móti kemur að á þessum tíma er almennt ódýrara að ferðast. Restin af árinu er nánast alltaf gott verður. 

Ummæli
blog comments powered by Disqus
Contact