Kúba
Ertu þreyttur á þessum hefðbundnu ferðamannastöðum og langar til að upplifa eitthvað nýtt og öðruvísi? Þá er Kúba staðurinn. Að lifa hér er líf án stress og áhyggja og sem ferðalangar kemst þú fljótt að því hversu auðvelt það getur verið að heillast og aðlagast lífstíl Kúbumanna. Tími er ekki vandamál á Kúbu svo tileinkaðu þér venjur innfæddra, slappaðu af. Bókaðu ferð til Kúbu með KILROY travels!
Casa þýðir hús á spænsku og á Kúbu er hús ekki bara hús. Allavega ekki þegar það á við hin heillandi "casas" sem finnast um alla Kúbu. Í raun eru þetta bara venjuleg heimli en sem ferðalangur þá er þetta frábært tækifæri til að geta dvalist hjá vingjarnlegri fjölskyldu sem býður þér að gista nánast ókeypis. Og þá erum við ekki aðeins að tala um eina nótt. Því fyrir örfáa hundraðkalla færðu gistingu, það er eldað ofan í þig og ef þú óskar þess þvegið utan af þér. Þessar fjölskyldur elska að bjóða gestum á þennan máta inná heimili sitt, og þú munt fljótt finnast þú vera einn af fjölskyldunni. Þessar casa upplifanir verða eflaust þær bestu sem þú tekur með þér heim frá Kúbu.
Höfuðborgi Kúbu, Havana, er róleg og elegant á sinn hátt og á sama tíma er hún mjög "old school". Havana hefur virkilega fallegar byggingar og þá sérstaklega gamli hlutinn af borginni en þar er göturnar mjóar og kósý. Það er algjört skylda að fara skoða Museo de Revolución sem er staðsett í fyrrum forseta höllinni og El Malecón sem er lífleg gata þar sem alltaf eitthvað er að gerast. Einnig er óhætt að mæla með því að kaupa sér ís af innfæddum en margir segja hann vera þann besta í heimi. Svo er það auðvitað spurning um að panta sér einn Paba Doble sem er einnig þekktur undir nafninu Hemingsway Daiquirí (nefndur í höfuðið á þessu heimsfræga skáldi en hann var víst í uppáhaldi hjá honum á meðan hann bjó í Kúbu) eða einn alvöru Mojito, en hann er sagður eiga uppruna sinn í Havanaborg.
Viñales er þekktur áfangastaður og auðvelt er að mæla með því fyrir hvern sem er, sérstaklega ef þú hefur gaman af klifri. Því í Viñales er eitt besta klifursvæði í heimi. Einnig er það fullkominn staður til að leigja sér hjól eða jafnvel hest og heimsækja tóbaksræktun á svæðinu.
Trinidad er falleg borg og er talin ein af best varðveittu borgum í Karabíska hafinu, frá nýlendutímanum þegar Spánverjar réðu ríkjum. Byggingarlistin í Trinidad er ótúlega glæsileg og borgin í heild er táknræn fyrir Kúbu, pastellituð hús, flottar kirkjur og hellusteinslagðar götur. Borgin hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakrar menningar og arkitektúr.
Í kringum Trinidad er fullt að hlutum að sjá: Hið fallegu El Escambray fjöll, Casilda bay með sinn kristaltæra sjó og hvítum ströndum. Á leið þinni til Trinidad skaltu koma við í Santa Clara til að skoða minnisvarðann um Che Guevara.
Hvítu strendurnar við Varadero freista einnig og þótt Varadero er mikil túristaborg er borgin þó tilvalin til afslöppunar. Hér geturðu notið síðustu dagana á ódýru en huggulegri all-inclusive hóteli.
Ef það er einhver staður frekar en annar sem þú ættir að segja barnabörnunum frá þá er það Kúba. Nú þegar Fidel Casto er búinn að segja af sér þá veit enginn hvernig Kúba mun líta út eftir 20 til 30 ár. Nú þegar yngri og "vægari" bróðir Fidels hefur tekið við völdum gæti kommúnisminn horfið hægt og rólega. Ástandið á milli Bandaríkjanna og Kúbu gæti batnað og þá er möguleiki að Kúba gæti glatað þessum gamla stíl sínum, svo nú er tíminn til að ferðast áður en það er um seinan!
Að ferðast um Kúbu er ekkert mál en reiknaðu samt alltaf með auka tíma ef þú átt ákveðið stefnumót.
Verð á Kúbu eru skrítin. Snakkpoki getur kostað jafn mikið og lítri af rommi.
Matvörubúðir geta verið nánast tómar. Ekki gera ráð fyrir miklu úrvali af neinu.
Netið er mjög hægt. Taktu með þér usb lykil ef þú ætlar þér að taka mikið af myndum.
Contact