{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

El Salvador

el-salvador-concepcion-de-ataco-village-houses-cover
el-salvador-el-tunco-beach-surfer-sidebar

El Salvador – Köfunarparadís, svartur sandur og strendur

El Salvador er minnsta land Mið-Ameríku en það er fyrir þá sem elska að fara til staða sem aðrir ferðamenn hafa ekki enn fundið. Menn minnast landsins oft fyrir ofbeldisfulla fortíð þess, en í nútímanum hefur það allt breyst. Íbúar landsins eru vingjarnlegir og náttúra landsins er stórbrotin. Fjöllin, eldfjallalandslagið og fallegir skógar gera landið að paradís fyrir göngufólk.

Fá fría ráðgjöf

Faldir gimsteinar í El Salvador

El Salvador er full af vistfræðilegum gimsteinum sem fáir skoða en einn sá alflottasti er Parque Nacional Montecristo - El Trifinio. Garðurinn er staðsettur í mikilli hæð í þessum þokukennda regnskógi og þar er mjög áhugavert náttúrulíf. Fáðu leyfi hjá Wild Life Service og skoðaðu brönugrös og sjaldgæfa köngulóarapa. Ef heppnin er með þér gætir þú jafnvel séð fjallaljón.

Parque Nacional Los Volcanes er virkilega fallegur þjóðgarður sem nær umhverfis þrjú eldfjöll. San Salvador eldfjallið hefur tvo tinda og það er vegur upp á topp. Þaðan er frábært útsýni yfir gíginn!

Lago de Coatepeque er tært og hreint eldfjallavatn sem er umkringt af fjallstindum. Það er fullkomið að fara í dagsferð þangað. Ekki gleyma sundfötunum!

Nýlenduborgirnar bjóða upp á áhugaverða staði eins og söfn sem sýna hina miklu sögu landsins. Borgin San Salvador er ekkert svo spes raun er borgin fátækleg og skítug. Skoðaðu frekar smærri þorp.

Fá meiri upplýsingar

Surf, köfun og önnur afþreying í El Salvador

Öldurnar í El Salvador eru fullkomnar fyrir surf. Taktu strætó (e. chicken bus) eða leigubíl frá strandarbænum La Libertad til norðurs en þar finnur þú indælar minni strendur þar sem er næstum enginn annar. Playa Zunzal og Tunco eru mjög fallegar strendur með góðu surfi.

Bestu staðirnir fyrir köfun eru á Los Cóbanos ströndinni en þar eru kóralmyndanir allt um kring. Það eru líka mörg tækifæri fyrir gönguferðir.

Fá meiri upplýsingar

Að komast á milli staða í El Salvador

Leigubílar og litlir strætisvagnar, colectivo, eru þægileg leið til þess að komast á milli staða. Mjög góð, alþjóðleg, rútufyrirtæki koma við í Terminal Puerto Bus í San Salvador. Rúturnar sem fara á milli borga eru gamlir bandarískir skólabílar, þetta er ódýr ferðamáti en ekki svo þægilegur.

Öryggi

Staðreyndin er sú að þú munt sjá mikið af litlum vopnum á strætum úti. Gættu þín þegar þú ferðast á vegum úti og þjóðvegum þar sem glæpir eru oft framdir þar. Það er alltaf best að forðast það að ferðast þegar er orðið dimmt. Fyrsta flokks rútur eru alltaf öruggari en ódýrari kosturinn. 

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í El Salvador

Við mælum með að heimsækja bæði Parque Nacional Los Volcanes og Parque Nacional Montecristo - El Trifinio þjóðgarðana. Svo er El Salvador þekkt fyrir frábær skilyrði fyrir surf og köfun, ekki láta það framhjá þér fara!

Fá fría ráðgjöf um ferðir til El Salvador

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreying

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.