Mið-Austurlönd
Taktu skrefið og gakktu á vit ævintýranna - ferðastu til Mið-Austurlanda með KILROY travels. Hér sameinast ólík mennning. Hið forna og nýja fer hér vel saman. Við bjóðum ódýrt flug, gistingu og ævintýraferðir fyrir bakpokaferðalanga.
Mið-Austurlönd er svæðið á milli Asíu, Evrópu og Afríku og hér er að finna mjög ólíka menningarheima og mörg trúarbrögð. Strendur, gólfvellir, lúxushótel í Dubai, markaðir í Sýrlandi og Oman, það er erfitt að segja hvar skal byrja. Í þessum löndum geturðu fundið elstu borgir í heimi en einnig nútímalegustu borgirnar.
Ef þú ert að leita að ævintýri á borð við Indiana Jones myndirnar þá skaltu fara til Petru, hinnar ævafornu borgar í Jórdaníu. Hefurðu áhuga á að prófa að keppa á kameldýri? Þetta eyðimerkursport hefur gengið í endurnýjun lífdaga í Sameinuðu Arabísku Furstaveldunum. Að okkar áliti eru fallegustu og óspilltustu strendur í heimi hér í Mið-Austurlöndum svo ef þú vilt frekar njóta sólarinnar og og slappa af á strönd þá er af nógu að taka. Ef þú verður þreyttur á að flatamaga í sólinni þá er tilvalið að fara í köfun í Rauðahafinu - hér finnurðu litríkar fiskategundir og kóralrif svo langt sem augað eygir. Svo máttu alls ekki láta framhjá þér fara að heimsækja hina stórskemmtilegu borg Beirút í Líbanon og töfrandi Damaskus í Sýrlandi. Hafðu samband við KILROY travels - við gefum þér góðar ráðleggingar um hvernig þú getur skipulagt ferðina.
Kilroy býður uppá ódýrar ferðir til Mið-Austurlanda. Sendu tölvupóst eða bókaðu online. Við getum boðið sérstaklega hagstæð fargjöld sem eru eingöngu í boði fyrir ungt fólk og námsmenn. Jafnframt bjóðum við uppá sveigjanleg fargjöld til Miðausturlanda. Hér gefst þér möguleiki á að breyta ódýrt bæði flugleiðum og dagsetningum alveg að þínum óskum - einnig á meðan á ferðalagi stendur!
Ævintýraferðir er skemmtilegur og ódýr kostur. Þú færð mest útúr ferðinni með því að ferðast í litlum hóp með leiðsögumanni sem þekkir svæðið og fer á staði sem hinn almenni ferðamaður fær ekki tækifæri á að sjá.
Jeppasafarí í gegnum Wadi Rum eyðimerkurnar í Jórdaníu er upplifun sem seint gleymist. KILROY getur bókað ferðina fyrir þig, hvort heldur sem það er kameldýraferð eða jeppasafarí.
Þú getur einnig farið á milli staða með því að panta innanlandsflug með lággjaldaflugfélögunum á svæðinu. Kynntu þér málið hjá KILROY Travels - við getum gefið þér góðar ráðleggingar og hvað þú átt að forðast.
KILROY þekkir bestu bakpokagistinguna á Mið-Austurlöndum og einnig bestu hótelin. Hjá okkur geturðu bókað lúxus hótel á viðráðanlegu verði. Þú getur að sjálfsögu einnig bókað þegar þú ertu kominn á svæðið en við mælum með að vera alla jafna búinn að bóka fyrstu tvær hótelnæturnar áður en langt er af stað. Það kemur í veg fyrir að þú lendir í að borga of mikið við komuna.