{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
jordan-camels-desert-wadi-rum-cover
jordan-backpacker-desert-sidebar

Jórdanía – Petra og Jerash

Jórdanía, konungsríki Hasemíta, er lítið arabískt land á Miðausturlöndum sem nær yfir allan suðurhluta Sýrlensku eyðimerkurinnar alla leið niður að Aqabaflóa  og er landið stjórnað af hinum vinsæla konungi Abdullah II. Landið deilir landamærum með Sýrlandi í norðri, Írak í norð-austri, Ísrael í vestri og Saudi-Arabíu í austri og suðri. Í Jórdaníu geturðu flotið um í hinu magnaða Dauðahafi og heimsótt eitt af undrum hins forna heims, Petra. Sjón er sögu ríkari!

Fá fría ráðgjöf

Hvað á að gera í Jórdaníu?

Amman er stærsta borg Jórdaníu en hún er líka höfuðborgin. Hún situr ofan á sjö hólum, sem sjökvíslótta stjarnan í þjóðfána Jórdaníu stendur fyrir. Upplifðu skemmtilegt borgarskipulag, stór og nýtískuleg úthverfin og verslunargöturnar sem eru í hrópandi andstöðu við gamla hlutann: borgarvirkið og rómverska amphit-leikhúsið. Gerðu ráð fyrir chai te drykkju, búðareigendur líta á tedrykkju sem einskonar tákn um gestrisni en þar að auki er þetta hluti af samningsviðræðum. Í Amman er næststærsta flaggstöng í heimi, en sú stærsta er í Uzbekistan. 

Ef þú ferðast í klukkutíma í bíl norður fyrir Amman finnurðu fornar rómverskar rústir Jerash. Staðurinn er tilvalinn til dagsferð ef þú vilt skoða eitthvað í nágrenni Amman. Taktu leigubíl og láttu hann keyra þig, bílstjórinn mun meira að segja bíða eftir þér ef þú biður hann um það. Taktu þinn tíma og njóttu tilkomumikils svæðisins. Í Jerash geturðu skoðað rómverska amphi-leikhúsið, Artemis hofið, Hadrian-boginn og hið sporöskjulaga Forum. Jerash er næst vinsælasti ferðamannastaðurinn í Jórdaníu, alveg í hælunum á stórbrotnu rústunum í Petra.

Í júlí 2007 var Petra kunngerð sem ein af hinum sjö nýju undrum veraldar, tilraunarverkefni til að að endurlífga kenninguna um sjö undur hins forna heims. Ferðamenn sem koma til Jórdaníu þekkja best til Petru úr ferðabæklingum, en staðurinn er tvisvar sinnum stórkostlegri en þú býst við. 

Fá meiri upplýsingar

Dauðahaf

Ef þú ert staddur í Jórdaníu á heitum og heiðskýrum degi er ferð til Dauðahafsins algert möst! Meðfram ströndinni eru mörg heilsuhæli og mörg þeirra dýr, en hér finnurðu einnig strendur og svæði fyrir almenning. Amman strönd er ein af vinsælustu ströndunum á meðal bæði ferðamanna og Jórdana. Frábær staður, þú þarft að borga smotterí í aðgangseyri en þá ertu líka kominn í algera paradís, á sundlaugasvæði og fallega strönd. Að baða í Dauðahafi er alger snilld og þvílík upplifun. Þú veist þú munt fljóta, en enginn getur lýst þessu nema hafa raunverulega prufað. Þegar þú labbar útí vatnið og um það bil þegar fætur þínir ná ekki lengur til botns muntu bókstaflega "skjótast upp", eins og flotholt! Tilfinningin er stórkostleg! Þú getur gleymt því að synda því hefurðu reynt að synda með fætur fyrir ofan vatnsyfirborð? Gríptu bara bjór, sestu í vatnið og njóttu!

Ferðast um Jórdaníu

Jórdanía er tiltölulega lítið land og samgöngur ódýrar. Einfaldast er að taka leigubíl og ferðast með honum útum allt. Það er líka einfalt að leigja bíl í Jórdaníu. Vegir eru góðir, vegalengdir stuttar, og vegaskilti mörg og skýr. Jórdanía er mjög öruggt land og tilvalið ferðaland fyrir þá sem vilja ferðast á eigin vegum. KILROY getur hjálpað þér að bóka þína ferð og flug til Jórdaníu!

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Jórdaníu

Ef þú ert í Jórdaníu ekki þá láta rústirnar í Petra framhjá þér fara en þær eru einar af sjö undrum veraldar. Amman er stærsta borg Jórdaníu en hún er líka höfuðborgin og því tilvalið að kíkja í heimsókn þangað.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Jórdaníu

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.