Abu Dhabi er höfuðborg Sameinuðu Arabísku Furstadæmana og er einnig stærsta furstadæmið. Þrátt fyrir að borgin virðist við fyrstu sýn vera mjög venjuleg stórborg er margt sem leynist á milli þröngra húsasunda. Það eru um tvær milljónir íbúa í borginni og um 80% af þeim eru farandverkamenn, flestir frá Asíu. Þetta skapar skemmtilegan fjölbreytileika og Abu Dhabi býður upp á mörg mismunandi ævintýri.
Abu Dhabi er staðsett við Persaflóann og lítur út eins og nútímavin í eyðimerkurlandslaginu. Borgin hefur þróast mjög hratt og er Abu Dhabi á meðal ríkustu borga heims. Það er því næstum ómögulegt að ímynda sér að fyrir aðeins 50 árum hafi íbúar Abu Dhabi eingöngu ferðast um á kameldýrum!
Fjölbreytt matargerð í Abu Dhabi
Vegna mikils fjölda farandsverkamanna frá ólíkum löndum Asíu í Abu Dhabi getur þú borðað fjölbreyttan asískan mat hérna. Næstum allir fluttu til borgarinnar með sína eigin matarmenningu meðferðis. Enginn ætti því að þurfa að fara svangur að sofa!
Að versla í Abu Dhabi
Abu Dhabi er nútímaleg borg með mörg háhýsi og nýtískulegar verslunarmiðstöðvar. Þetta er borgin sem þú átt að heimsækja ef þú vilt kaupa nýjustu raftækin á góðu verði. Á Sheik Zayed götunni finnur þú tölvuverslanir eins langt og augað nær! Ef þú vilt þá geturðu svo skroppið í dagsferð til Dubaí og kíkt á búðirnar þar.
Að millilenda í Abu Dhabi
Það er ekki mikið um bakpokaferðalanga í Abu Dhabi og þú vilt kannski ekki eyða of miklum tíma hérna. Það er hins vegar frábært að stoppa hérna í nokkra daga þegar þú ert að ferðast á milli Evrópu og Asíu, Afríku eða Eyjaálfu. Þegar flogið er með flugfélaginu Etihad Airways er alltaf millilent í Abu Dhabi og við getum breytt þessari millilendingu í nokkurra daga stopp fyrir lítið eða ekkert auka gjald!
Hvenær er best að heimsækja Abu Dhabi?
Það getur orðið mjög heitt í Abu Dhabi yfir sumarmánuðina, í júlí og ágúst getur hitinn t.d. farið upp í 50°C. Þú ættir því að hugsa þig vel um hvort þetta sé rétti tíminn fyrir þig til að skoða borgina. Ef þú ákveður að taka sénsinn máttu búast við allt að 50% afslætti á hótelum og afþreyingu þar sem það eru svo fáir ferðamenn á þessum tíma.