{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Amazon frumskógurinn

brazil-pico-do-jaragua-road-cover
brazil-buzios-fishermen-sidebar

Ferðir til Amazon frumskógarins

Amazon er stærsti regnskógur heims og liggur hann á mörkum margra landa: Brasilíu, Perú, Bólivíu, Venesúela, Ekvador, Kólumbíu, Suriname og Guyana. Þessi regnskógur er einn mest heillandi og spennandi staðurinn í öllum heiminum - þú getur ekki ferðast til Suður Ameríku án þess að heimsækja þennan fallega frumskóg og öll þau óteljandi dýr sem í honum búa!

Fá fría ráðgjöf

Bæði Himnaríki og Helvíti á sama tíma

Þegar þú ferðast til Suður-Ameríku, sérstaklega til Brasilíu, ættir þú ekki að láta framhjá þér fara upplifun sem minnir að vissu leiti á risastórt gróðurhús. Amazon er heimsins stærsti regnskógur, sem þekur meira en 7 milljón ferkílómetra! Þetta magnaða náttúruundur liggur að mestu í Brasilíu en teygir sig inn í Ekvador, Perú, Bólivíu, Venesúela, Kólumbíu, Suriname og Guyana. Frumskógurinn er svo heitur og rakur að stundum líður þér eins og þú sért í helvíti ef þú stoppar of lengi – margir fara heim sannfærðir um að hér sé mönnum ekki ætlað að vera! Þrátt fyrir það mælum við eindregið með heimsókn hingað, því Amazon er jafn mikið himnaríki og hið gagnstæða, hér er óviðjafnanleg náttúra og einstakt andrúmsloft.

Ævintýri í Amazon frumskóginum

Það er nóg af tækifærum til að upplifa Amazon frumskóginn og glæsilega Amazon ánna – sem er einnig sú stærsta sinnar tegundar í heimi. Tækifærin eru mörg bæði í Brasilíu og í mörgum nágrannalandanna. Þú getur valið milli ferða sem taka allt frá hálfum degi og upp í mánuð eða meira - til dæmis má nefna þær mörgu frábæru ferðir sem þú getur bókað á okkar vegum.

Flestar ferðir í Brasilíu fara frá Manaus, sem er langstærsta borg Amazon sem hýsir u.þ.b 1,6 milljónir íbúa. Héðan eða frá borgum eins og Santarém, Porto Velho eða Boa Vista getur þú komist út og upplifað lífið í frumskóginum og ánum í návígi: tré og plöntur sem þú vissir ekki að væru til, “howler monkey” apaketti og krókódíla, ferskvatnshöfrunga, risanaggrísi, mauraætur, tapíra – og hver veit, kanski jafnvel púmu eða jagúar! Og auðvitað eru fullt af páfagaukum og óteljandi skordýr og skriðdýr, sérstaklega cicada flugur og froskar sem halda óbrotna tónleika á hverri nóttu fram á dag.

Fá meiri upplýsingar

Eins og að vakna í friðsælli Paradís

Það er eitthvað mjög sérstakt og friðsælt við að vakna hérna í frumskóginum snemma um morgun. Ímyndaðu þér fjólubláan ljóma morgunsólarinnar yfir trjánum, sem eins og alltaf eru sveipuð morgunmistri. Í fjarska heyrir þú framandi hróp apakatta sem minna á þrumuveður. Regnskógurinn er baðaður sérstöku ljósi á þessum tíma dags og þú ríst hægt og rólega úr hengirúminu sem þú sefur í hér í frumskóginum. Allt er með friði og ró, hitt fólkið í frumskógarleiðangrinum er enn sofandi og þú hefur Amazon útaf fyrir þig - þú ert eina manneskjan í heiminum. Þú ferð úr fötunum og hoppar útí ána í ferska og yndislega baðið sem þú nýtur á hverjum morgni. Hér eru engir píranafiskar og engir krókódílar, bara hreint vatn og ferskt loft. Og himneskt útsýni. Þetta er besti tími dagsins.

Já, svona upplifun bíður þín í Amazon, og ekki bara í Brasilíska hlutanum – eins og áður sagði getur þú líka farið í ævintýraferðir í þeim hlutum skógarins sem liggja í nágrannalöndum Brasilíu. 

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.