Tæland

Trekking í Chiang Mai héraðinu er frábær leið til að upplifa eitthvað annað en strandarlífið.
 

Ferðir til Tælands - Nafli Asíu

Það er ekki að ástæðulausu að Tæland er vinsælasti áfangastaður Asíu. Þar getur þú notið lífsins á hvítum sandströndum, upplifað hof og frumskóga og kynnt þér frábæra matargerð. Landið er ríkt af menningu og sögu, þar er dásamlegt hitabeltisloftslag og ógrynni af skemmtilegum mörkuðum fyrir verslunarglaða. Bókaðu ferð með KILROY og uppgötvaðu allt það sem Tæland hefur upp á að bjóða.

Ferð til Tælands býður upp á allt sem ævintýraþyrst hjartað girnist, alveg frá Chiang Mai í norðri til Koh Lanta, Koh Phi Phi, Koh Samui og allra hinna paradísareyjanna í suðri. Þar finnurðu fallegar hvítar strendur, sól og hita, einstaka köfunarstaði, flott kóralrif iðandi af litríku lífi, ævintýralega regnskóga, skemmtilegt dýralíf, forn hof, framandi menningu og sögu, ótrúlega bragðgóðan mat og vingjarnlegt og alúðlegt fólk. Það er góð ástæða fyrir því að Tæland er kallað "land brosanna". Og til að gera þetta land enn meira heillandi; það er svakalega ódýrt að lifa og ferðast þar.

Að ferðast um Tæland

Það er mjög ódýrt að ferðast um Tæland með innanlandsflugi, sérstaklega ef þú bókar á netinu. Rútur eru einnig ódýrar og þótt flestar bjóði uppá salerni og loftkælingu mælum við með að þú ferðit með VIP rútum - þú borgar örlítið meira en auknu þægindin eru vel þess virði. Auk þess eru drykkir og ýmis nasl oft innifalið í VIP rútunum.

Ferðaráð

Mundu að semja um verð áður en þú ferðast með tuk tuk bílum (þriggja hjóla leigubílar) og þegar þú ferðast með venjulegum leigubílum skaltu ganga úr skugga um að bílstjórinn setji gjaldmælinn í gang.

Að versla í Tælandi

Allir sem fara til Tælands ættu að nýta tækifærið og kaupa sér sérsniðin föt (jakkaföt, skyrtur o.s.frv.). Bestu kaupin í Tælandi gerirðu á götumörkuðum, en þeir eru svo margir og spennandi að þar væri auðveldlega hægt að gleyma sér í marga daga. Hægt er að gera frábær kaup á tælensku silki, skartgripum og öðru handverki ef þú ert tilbúin(n) í samningaviðræður. Einnig er hægt að kaupa ódýrar eftirlíkingar af dýrum merkjavörum eins og Rolex og Calvin Klein. Það er venjan að prútta um verðið, en ekki ganga of langt - mundu að manneskjan sem þú ert að kaupa af þarf að sjá fyrir sér og fjölskyldu sinni.

Matur í Tælandi

Tælenskur matur verður að fá sérstaka umfjöllun því hann er stór hluti af upplifuninni á ferðalagi um Tæland. Tælenskur matur er einfaldlega frábær og þú færð að smakka hvert ljúffenga bragðið á fætur öðru. Ef þú heldur að þú hafir smakkað góðan tælenskan mat heima skaltu hugsa þig aftur um. Fjölbreytnin er ótrúleg, kryddin æðisleg og verðin hlægilega lág - sérstaklega hjá götusölum þar sem þú getur borðað heilan disk af Khao Pad (steiktum hrísgrjónum) eða Pad Thai (steiktar núðlur) fyrir 1 evru. 

Öðruvísi upplifanir í Tælandi

Við mælum með að þú farir að sjá Thai box keppni sem eru skipulagðar um allt Tæland, en þú finnur varla meira framandi afþreyingu og andrúmsloft. Ef þú kýst ögn rólegri afþreyingu er tilvalið að fara á námskeið í tælenskri matargerð. Ef þú vilt svo róa þig enn meira niður skaltu fara inn á Thai nuddstofu og njóta þess að fá dásamlegt og ódýrt nudd - eftir langt bakpokaferðalag er fátt betra. Svo eru alltaf fílar - heimsókn til Tælands er fullkomnuð þegar þú ferð á fílsbaki um framandi slóðir.

Veðurfar á Tælandi

Tæland er stórt land og veðurfarið því breytilegt eftir stöðum. Mikilvægt er að taka tillit til regntímabilsins þegar þú ert að skipuleggja ferðalag til Tælands. Hérna eru almennar viðmiðunarreglur:

Vestur Tæland: Regntímabil frá maí til nóvember, ráðlagður ferðatími frá desember til apríl.

Austur Tæland: Regntímabil frá september til nóvember, ráðlagur ferðatími frá júlí til september.

Norður Tæland:Regntímabil frá júlí til September, ráðlagður ferðatími frá nóvember til apríl

Ummæli
blog comments powered by Disqus
Contact Contact